þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Það er leikur að læra

Hellúú....
Jæja þá er mar bara byrjaður skólanum, en líst mér bara vel á þetta, so far.
Ég er nú reyndar bara á leiðtogaviku og er akkúrat núna á fyrirlestri um hópstarf, mjög skemmtilegt. Ég hitti einmitt hópinn minn í gær, sem ég verð með fram á áramótum. Það eru 10 saman í hópum, 5 af 1 ári og 5 af 2 ári og svo vinnum við innan hópsins mikið tveir og tveir saman, 1 og 2 árs nemar, en þetta kemur allt í ljós. Hópurinn minn heitir Bossarnir og slagorð okkar er "Af botni Á TOPPINN".
Það er ekki enn komin nettengin í bústaðinn en það á nú að lagast í þessari viku.
Stefnan er tekin á Reykjavík-city í dag eftir skóla, kíkja í IKEA og rúmfatalagerinn, það er planið að gera heimilið aðeins vistlegra. Potturinn hefur komið vel út, verið prófaður núna tvö kvöld í röð, og get ég hiklaust mælt með honum við alla þá sem er búin að lofa að koma að heimsækja okkur.
Svo er það bara vesturferð á föstudaginn, að sækja bílinn, á bara eftir að redda mér fari vestur...
það verður nú gert eitthvað skemmtilegt þar, vonandi, kíkt í golf og e-ð fleira.

Var að taka próf um hvar ég væri stödd í hópastarfi og fékk ég hæstu einkunn sem frágangsmaður, fékk líka hátt í framkvæmdarmanni.
hérna eru lýsingarnar á þessum týpum:
1. Framkvæmdamaðurinn (FM)
Framkvæmdamaðurinn er dæmigerður athafnamaður. Hann er góður í að breyta áætlunum og stefnumótun í áþreifanleg verkefni og framkvæmdir. Hann hefur jafnaðargeð og góða dómgreind. Hann er skilvirkur og hagsýnn og sér hvaða markmið eru raunhæf og hvaða ekki. Hann er agaður og góður skipuleggjandi og sér til þess að hlutirnir séu framkvæmdir. Hann er tryggur og leggur sig frekar eftir hagsmunum fyrirtækisins en eigin. Hann er samviskusamur, traustvekjandi og umburðarlyndur gagnvart öðrum. Hann vinnur verkefni sem tengjast stjórnun á kerfisbundinn hátt þó svo að þau séu langt frá því að vera athyglisverð eða skemmtileg (eins og til dæmis að reka einhvern sem hefur ekki sýnt viðunandi frammistöðu eða að halda agaviðtal). Hann er hrifnari af því að framkvæma hlutina en að ræða mikið um þá eða halda endalausa fundi. Hann er skilvirkur gerandi með praktískt viðhorf og mikinn vilja.

Veikleiki: Framkvæmdamenn geta verið dálítið íhaldssamir og ósveigjanlegir og fljótir að hafna fyrstu hugmyndum annarra sem þeir telja vera óhagkvæmar. Þeir vilja helst hafa gott skipulag og samkomulag.

Talmál:
1. Kýlum á þetta.
2. Snúum okkur að verkefninu.
3. Það sem þarf að gera þarf að gera.
4. Ef það er hægt að gera það þá gerum við það.
5. Mikil vinna hefur aldrei drepið neinn.
6. Það er mannlegt að hafa rangt fyrir sér.
7. Ég stend með mínu fyrirtæki.
8. Ef það er erfitt þá gerum við það strax, ef það er ómögulegt þá mun það taka aðeins lengri tíma.



7. Frágangsmaðurinn (FR)
Frágangsmaðurinn hefur hæfileika og aga til að skila góðum afköstum. Hann lýkur öllu sem hann byrjar á með mikilli nákvæmni, sem er mikilvægur hæfileiki í öllum framkvæmdum. Hann leggur mikla áherslu á smáatriði og skyldur. Hópar sem bregðast á síðustu metrunum – þegar markmið eru í nánd – vantar oft frágangsmann. Frágangsmaðurinn er haldinn vissri fullkomnunaráráttu; hann gleymir engu, skipuleggur fram í tímann og framkvæmir áætlanir í öllum smáatriðunum. Hann er hrifinn af reglum og ákveðnum mynstrum. Hann er frekar innhverfur en úthverfur. Hans ytri sjálfsagi og ró er oft villandi því að hann drekkur í sig alla streituna sem fylgir starfinu, stundum á kostnað heilsunnar. Frágangsmaðurinn fylgist með gæðum og athugar hvort allt gangi vel og hvort verkefnum sé skilað á réttum tíma. Hann hefur áhyggjur af öllu sem gæti gleymst eða farið úrskeiðis. Hann leitar eftir samræmi og stöðugu framlagi og hefur ekki áhuga á töfraljóma stórbrotins árangurs. Í augum annarra virðist hann vera rólegur einstaklingur sem er sjaldan ákafur og tekur öllu með jafnaðargeði. Frágangsmaðurinn er tregur til að byrja á einhverju sem hann efast um að hann geti lokið við. Hann á erfitt með að fela öðrum verkefni.

Veikleiki: Frágangsmaðurinn hefur tilhneigingu til að leggja ofuráherslu á smáatriði á kostnað heildaryfirsýnar eða almennrar stefnu. Oft er hann ekki nógu umburðarlyndur gagnvart fólki sem hefur yfirborðslegt eða ævintýralegt viðhorf. Hann getur haft niðurdrepandi áhrif á hópmeðlimi vegna stöðugs nöldurs.

Talmál:
1. Tékkum aðeins á þessu bara til að vera viss.
2. Ég er með slæmt hugboð um þetta.
3. Gerum gott samkomulag.
4. Það borgar sig alltaf að lesa smáletrið.
5. Það er engin afsökun til fyrir að vera ekki fullkomin.
6. Er búið að kanna þetta?
7. Fullkomnun bara rétt dugar.
8. Þetta er eitthvað sem krefst fullkominnar athygli.
9. „Ef eitthvað getur farið úrskeiðis, þá mun það fara úrskeiðis“, og eins og O’Toole sagði um lög Murphy, „Murphy var bjartsýnn.“


Hvernig finnst ykkur þetta eiga við mig, hummm.......

jæja er að fara að hætta þessu kjaftæði, bið að heilsa í bili..
bæjó,,,,over and out

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með síðuna! Nú er að halda út í bloggheiminum.. það er auðvelt að byrja.. en að halda út.. það er annað mál.. :o)
Ætlaði bara að kasta kveðju, sjáumst á föstudag!
Kveðja Anna Ess

2:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með síðuna! Nú er að halda út í bloggheiminum.. það er auðvelt að byrja.. en að halda út.. það er annað mál.. :o)
Ætlaði bara að kasta kveðju, sjáumst á föstudag!
Kveðja Anna Ess

2:45 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home